Upphaflega var hópur Fjallafólks settur á laggirnar sem sjálfstætt framhald hinnar vinsælu fjallgöngudagskrár Toppaðu með 66°Norður sem á síðastliðnum þremur árum hefur skilað yfir 700 hundruð göngumönnum og -konum á öllum aldri á hæsta tind landsins Hvannadalshnúk (2.110 m). Fjallafólk er nokkurs konar framhaldsgönguhópur fyrir fólk sem þegar er komið á bragðið. Fjallafólk og Fjallagengið eru sambærilegir hópar.
Eins og þeir einir vita sem reynt hafa er hver fjallganga einstakt ferðalag sem skilur eftir sig fjölmörg minningabrot. Ef til vill lituðu aðstæður á einhvern hátt minningarnar; skin og skúrir, einstakt sólarlag eða stjörnum prýddur næturhiminn. Kannski var það einstök samvinna hópsins, áhugaverðar umræður við samferðamenn eða hvernig þú nýttir reynslu þína og þekkingu til að yfirstíga erfiðar veðuraðstæður. Til langs tíma litið er víst að þú munt yfirstíga fjölmargt sem þú hefðir áður litið á sem hindranir og auka færni þína á mörgum sviðum svo ekki sé talað um hið einstaka samband við náttúruna sem verður sífellt traustara eftir því sem ferðunum fjölgar.
Marga hryllir við tilhugsuninni um fjallgöngur í myrkri og kulda vetrarmánuðanna og vissulega er það meiri áskorun en fjallgöngur á hlýjum og björtum sumardegi. Þeir sem ganga reglulega á fjöll allt árið um kring vita að oftast er veðrið (aðstæðurnar) verst fyrir utan svefnherbergisgluggann ... en alls ekki svo slæmt þegar á hólminn er komið.
Ef þú ert til í að bjóða vetrarmyrkri og rysjóttu veðri birginn áttu fullt erindi í Fjallafólk.
Að stunda fjallgöngur og útivist allt árið um kring. Langtímamarkmið Fjallafólks eru nokkur en þessi helst:
Nýleg verðlaun:
Skrifstofa:
Bankastræti 2
101 Reykjavík
Tölvupóstur:
mountainguides@mountainguides.is
Sími/Fax:
Sími: +354 587 9999
Fax:+354 587 9996