Brattgengið - Nánar
|
Verð: 315.000 kr.
|
Fámennur og öflugur hópur
Í Brattgenginu verður aðeins pláss fyrir tólf þátttakendur og ekki hægt að ganga í raðir hópsins eftir fyrsta námskeiðið nema viðkomandi hafi áður setið svipað námskeið og hljóti blessun yfirleiðsögumanns.
Dagskrá Brattgengisins miðast við að þátttakendur afli sér smám saman aukinnar færni sem nauðsynleg verður til að kljást við æ erfiðari tinda.
Reyndir fjallaleiðsögumenn
Að minnsta kosti tveir fjallaleiðsögumenn fylgja hópnum á öllum námskeiðum og í ferðum en þar sem nauðsynlegt er verða fleiri fjallaleiðsögumenn kallaðir til.
Aðeins okkar allra reyndustu fjallaleiðsögumenn fara fyrir hópnum í tindaferðum og verður hlutfall leiðsögumanna og þátttakenda á þessum námskeiðum og tindum frá 1:6 upp í 1:2 á erfiðustu tindunum. Lágt hlutfall þátttakenda á hvern leiðsögumann tryggir gæði og persónulega þjónustu.
Umsjónarmenn Brattgengisins eru
Leifur Örn Svavarsson og
Björgvin Hilmarsson
Námskeiðin
Ísklifur, vetrarfjallamennska, jöklaferðamennska og klettaklifur.
Á námskeiðum læra brattgengir m.a. ...
- ... undirstöðuatriði leiðavals í fjalllendi
- ... um ferðamennsku á jöklum
- ... að beita broddum í brattlendi
- ... að beita gönguöxi í brattlendi
- ... að stöðva sig með ísaxarbremsu
- ... að meta hættur á jöklum
- ... að tryggja öryggi sitt með línu á jöklum
- ... að síga með ýmsum aðferðum
- ... að klifra upp fasta línu
- ... að bjarga sér úr jökulsprungu
- ... að setja upp einfalda félaga-/sprungubjörgun
- ... að ferðast að vetrarlagi þar sem gist er í tjöldum eða snjóhúsum
- ... um ferli klifurs
- ... sitthvað um megintryggingar og millitryggingar í klettum, ís og snjó
- ... að tryggja öryggi sitt með aðstoð línu í brattlendi
- ... um undirstöðuatriði rötunar
Nauðsynlegur útbúnaðarlisti þátttakenda í Brattgenginu
- Hjálmur - hægt að leigja
- Alstífir skór
- Broddar
- Gönguísöxi
- Klifuraxir (par) - hægt að leigja
- Klifur-/jöklabelti - hægt að leigja
- Fjórar læstar karabínur
- Tvær ólæstar karabínur
- Skófla
- Snjóflóðaýlir
- Snjóflóðastöng
Annað – öryggi og tryggingar:
IFLM áskilur sér rétt til þess að breyta út af fyrirhugaðri dagskrá ef öryggi þátttakenda þykir ógnað.
Allar fjallgöngur fela í sér áhættu.
Öryggi viðskiptavina í ferðum Fjallaleiðsögumanna er ávallt í fyrsta sæti og þess vegna leggja Fjallaleiðsögumenn mikla áherslu á hættumat og fyrirbyggjandi ráðstafanir í menntun leiðsögumanna sinna.
Þátttakendur eru á eigin ábyrgð í ferðum Fjallaleiðsögumanna.
Þátttakendum er bent á að leita sér upplýsinga um tryggingar hjá tryggingafélögum.
Hlutverk leiðsögufólks Fjallaleiðsögumanna er ekki að koma fólki á toppinn – heldur að allir komi heilir heim.
Fríðindapakki
Fyrir utan augljósan heilsufarslegan ávinning af reglulegum fjallgöngum standa þátttakendum í gönguhópum Fjallaleiðsögumanna margs konar fríðindi til boða:
- Afsláttur á námskeiðum Fjallaleiðsögumanna 2012
- Jöklaganga í Skaftafelli eða á Sólheimajökli, boðsferð fyrir tvo, sumarið 2012
- Mánaðarkort í Sporthúsinu
- Ferðaávísun sem gildir í allar lengri ferðir Fjallaleiðsögumanna árið 2012
- Aðgengi að dagskrá Fjallafólks og Fjallagengis