Brattgengið - Dagskrá Veturinn 2010 - 2011

Verð: 315.000 kr.
  Bókaðu núna í fjallgönguhópinn Brattgengið!

Brattgengið safnar fallegustu tindum landsins og fallegum sígildum klifurleiðum. Hlutfall þátttakenda og leiðsögumanna er í sviga fyrir aftan nafn fjallsins
 

Dagskrá Brattgengisins:

Nóvember
23. nóvember, miðvikudagskvöld kl. 20:00
Kynningarfundur fyrir nýja meðlimi Brattgengisins. Farið yfir dagsrká vetrarins, fjallað um útbúnað og afsláttarkjör til Brattgengisins. Undirbúningur fyrir ísklifurnámskeið.

26. nóvember – Ísklifurnámskeið (1:6). Námskeiðið er haldið í Sólheimajökli eða í ísfossi í nágrenni Reykjavíkur ef aðstæður eru góðar. Leiðsögumenn: Leifur Örn Svavarsson og Björgvin Hilmarsson

Desember
10. eða 11. desember – Spori eða sambærilegur ísfoss. Ísklifurferð (1:2). Hámark er 8 þátttakendur hvorn dag. Leiðsögumenn: Leifur Örn Svavarsson, Björgvin Hilmarsson, Jón Gauti Jónsson og Ívar Finnbogason
 
Janúar
21. eða 22. janúar – Grafarfoss eða sambærilegur ísfoss. Ísklifurferð (1:2) Hámark er 8 þátttakendur hvorn dag. Leiðsögumenn: Leifur Örn Svavarsson, Björgvin Hilmarsson, Jón Gauti Jónsson og Ívar Finnbogason

Febrúar
17-18. febrúar – Vetrarfjallamennskunámskeið (1:6) Gist verður í snjóhúsi. Leiðsögumenn: Björgvin Hilmarsson og Jón Gauti Jónsson

Mars
10. mars – Eggjar Hafursfells (1:6). Upprifjun á ísaxarbremsu verður tekin í upphafi ferðar síðan verður gengið á mannbroddum um ísilagðar hlíðar og notuð stuðningslína ef þarf í bröttustu höftum. Leiðsögumenn: Björgvin Hilmarsson og Ívar Finnbogason

Apríl
21. apríl – Örninn á Snæfellsnesi (1:4) Ís- og snjóklifur á fallegan tind. Leiðsögumenn: Björgvin Hilmarsson og Jón Gauti Jónsson

Maí
5.-6. maí – Jöklanámskeið (1:6). Á námskeiðinu er þáttakendum kennt að ferðast um jökla á öruggan hátt. Annar dagurinn verður í skriðjökli og seinni dagurinn í raunverulegum jökulsprungum. Leiðsögumenn: Björgvin Hilmarsson og Ívar Finnbogason

25-26. maí – Fjallkirkjan (Tindaborg) Öræfajökli (1:4) Tveggja daga ferð á einn fallegasta tind landsinsLeiðsögumenn: Björgvin Hilmarsson, Jón Gauti Jónsson og Ívar Finnbogason

Júní
16. júní – Klettaklifurnámskeið (1:4). Námskeiðið er haldið í Stardalshnjúkum. Leiðsögumenn: Leifur Örn Svavarsson, Björgvin Hilmarsson og Jón Gauti Jónsson.

29. júní til 1. júlí – Þumall í Skaftafelsfjöllum (1:2). Tveggja daga ferð. Tjaldað er í botni Kjósarinnar og síðan er langur dagur til að klífa einn flottasta tind landsins.
Leiðsögumenn: Leifur Örn Svavarsson, Björgvin Hilmarsson, Jón Gauti Jónsson og Ívar Finnbogason

Júlí
Alpaferð Brattgengisins. Vikuferð í frönsku alpana þar sem aðsetur verður haft í fjallabænum Chamonix. Klifnir verða tæknilega erfiðir alpatindar áður en lagt verður í hæsta fjall Vestur Evrópu, Mt. Blanc. Ferðin er ekki innifalin í verði Brattgengisins.

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN