Brattgengið - Kynning

Verð: 315.000 kr.
  Bókaðu núna í fjallgönguhópinn Brattgengið!

Vönduð námskeið, glæsilegir tindar og krefjandi aðstæður undir faglegri leiðsögn Fjallaleiðsögumanna.

Brattgengið er Fjallamennskuhópur Fjallaleiðsögumanna og er hugsaður fyrir þá sem þegar hafa aflað sér reynslu af fjallgöngum og útivist en langar að auka færni sína í aðferðum fjallamennskunnar til  að spreyta sig á flóknari verkefnum og klífa glæsilega en stundum torsótta tinda með öryggi að leiðarljósi. 

Eftir glimrandi gengi Brattgengisins á fyrsta ári hefur verið ákveðið að halda áfram á sömu braut og bjóða uppá ferðir á enn fleiri af flottustu tindum landsins. Nýir þátttakendur í Brattgenginu fara í gegnum röð námskeiða sem tryggja þeim færni í að takast á við þau krefjandi verkefni sem framundan eru.

Á þremur námskeiðum sem haldin verða fyrri hluta vetrar verða kenndar klassískar aðferðir fjallamennskunnar en auk þess verður námskeið í klettaklifri í júní

Eldri meðlimir Brattgengisins greiða árgjald, 24.900 kr., og hafa, eins og allir meðlimir Brattgengisins, aðgang að vikulegum æfingum annara hópa og aðgang að fjallgöngum Brattgengis, Fjallagengis og Fjallafólks gegn gjaldi. Nauðsynlegt er fyrir þátttakendur Brattgengisins að taka upprifjun í ísaxarbremsu á hverju ári til þess að geta ferðast um ísilagt fjallendi á öruggan hátt

Brattgengið er lítill hópur sem samanstendur af 4-12 þátttakendum.

Umsjónarmenn Brattgengisins eru Björgvin Hilmarsson og Leifur Örn Svavarsson. Auk þeirra koma Jón Gauti Jónsson og Ívar Finnbogason að leiðsögn í ferðum Brattgengisins.
Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN