Verð:
198.000 kr.
  Bókaðu núna í Skíðafengið!

Skíðagengið - Dagskrá


Kynningarkvöld 27. október

Kynningarkvöld fer fram í verlun 66°N við Faxafeni.
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn kynna starfsemi Fjallgönguhópa sinna og dagská þeirra veturinn 2011-2012. Dagskrá hópanna skiptist í vikulegar þrekæfingar eða kvöldfjallgöngur og auk þess sem gengið er á eitt fjall í mánuði.

Síðasta vetur gengu Fjallafólk, Fjallagengið og Brattgengið á marga fallega tinda af öllum stærðum og gerðum og í ár mun síðan Skíðagengið bætast í hópinn fyrir þá sem vilja komast út fyrir troðnar slóðir skíðabrautanna.

Fyrir og eftir fundinn verður boðið upp á 20% afslátt af vörum 66 Norður fyrir fundargesti.

Gengi Fjallaleiðsögumanna eiga erindi við alla sem hafa áhuga á að stundi fjallgöngur og útivist allt árið um kring í góðum hópi skemmtilegra göngufélaga undir faglegri leiðsögn. Taktu skrefið og láttu sjá þig í Faxafeninu á fimmtudaginn!

 
Nóvember

30. nóvember – Miðvikudagskvöld kl. 20

Farið ýtarlega yfir dagskrá Skíðagengisins. Fjallað um fjallaskíðaútbúnað og sérstök tilboð á fjallaskíðaútbúnaði til Skíðagengisins. Gengið verður frá sameiginlegri pöntun á útbúnaði fyrir þá sem þess óska.


Febrúar
17-19. febrúar – Hlíðarfjall, skíðun utan brauta.

Eftir stutta yfirferð yfir rétta notkun útbúnaðarins og helstu öryggisatriði þá notum við fjallaskíðabúnaðinn til að nálgast þær brekkur sem gefa hvað besta skíðun í Hlíðarfalli. 

 

Mars

10. mars – Móskarðshnjúkar.

Fjallaskíðadagur í námskeiðsformi þar sem farið er yfir rétta notkun á búnaðnum, ferðahegðun, leiðarval, snjóflóðahættu og fleira sem sem tilheyrir þessu sérhæfða áhugamáli.


24. mars – Botnssúlur

Botnsúlur bjóða uppá fjölbreyttar aðstæður til fjallaskíðunar og eru steinsnar frá höfuðborginni. Þennan dag munu kempurnar Helgi Benidiktsson og Ástvaldur Guðmundsson leiða hópinn og miðla af þekkingu sinni.

 

Apríl

19 -22. apríl – Bestu brekkur Tröllaskagans

Sumardaginn fyrsta og helgina þar á eftir munum við nota til þess að skíða bestu brekkur Tröllaskagans.  Þetta fjölbreytta fjallasvæði bíður uppá stórkostlega skíðun.

 

Maí
5. maí –  Öræfajökull

Gengið verður Sandfellsleiðina upp á Öræfajökul og skíðað niður á Svínafellsjökul sem er ein flottasta skíðaleið á landinu.  Hlutfall þátttakenda og leiðsögumanna er 1:4 á þessari krefjandi leið.

 

19. maí –  Hekla, norðurhlíð.

Á lítið breyttum jeppa má aka að snjólínu Heklu.  Ef farið er beint norður af hátindi Heklu er það löng og ótrúlega brött vorskíðun.  Skörp skilin milli hvíts fjalsins og svarts undilendisins skapa skemmtilegar andstæður.  

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN