Skíðagengið er hugsað fyrir vant svigskíðafólk sem langar að víkka sjóndeildarhringinn og komast út fyrir troðnar brautir skíðasvæðanna. Með fjallaskíðunum má sameina tvö áhugamál, fjallgöngur og skíði. Í Skíðagenginu verður áherslan meira skíðamegin. Tilgangurinn með ferðunum er að komast í góðar ósnortnar skíðabrekkur og góðan snjó þó vissulega sé æskilegt að uppgönguleiðin sé falleg og útsýni frá tindinum sé glæsilegt.
Með þátttöku í Skíðagenginu fylgir árgjald í Fjallafólk eða Fjallagengið. Þátttakendur geta tekið þátt í kvöldgöngum og æfingum en greitt er sérstaklega fyrir lengri ferðir Fjallagengis og Fjallafólks.
Hámarksstærð hóps er 8 manns. Umsjónarmaður Skíðagengisins er Leifur Örn Svavarsson
Nýleg verðlaun:
Skrifstofa:
Bankastræti 2
101 Reykjavík
Tölvupóstur:
mountainguides@mountainguides.is
Sími/Fax:
Sími: +354 587 9999
Fax:+354 587 9996