Á undanförnum árum hefur færst í vöxt að starfsmenn vinnustaða taki sig saman og gangi á fjöll með það fyrir augum að ganga saman á Hvannadalshnúk, hæsta tind landsins með Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum um vorið. Sé þess óskað geta Íslenskir Fjallaleiðsögumenn komið að slíkri þjálfunardagskrá svo gangan á Hvannadalshnúk verði sem best undirbúin. Í slíkri þjálfunardagskrá er ekki óalgengt að hópar gangi fyrst á tinda nokkurra lægri fjalla svo sem Skarðsheiðar, Botnssúlna, Eyjafjalla- eða Snæfellsjökuls í fylgd reyndra leiðsögumanna. Fáðu án endurgjalds alvana fjallaleiðsögumenn Jón Gauta Jónsson eða Leif Arnar Svavarsson í heimsókn til að fara yfir hvernig best er að standa að undirbúningi, leiðbeina með fatnað, útbúnað og nesti ásamt því að lýsa í máli og myndum hvernig staðið er að fjallgöngum Íslenskra Fjallaleiðsögumanna. Í ferðum á Hvannadalshnúk er lögð mikil áhersla á að vinnustaða- eða vinahópar haldi saman sem sjálfstæðir hópar á fjallinu. Fyrir hverjum átta manna hópi, sem heldur saman í einu línuteymi, fer vanur fjallaleiðsögumaður.
Hringdu núna í síma 587-9999 eða sendu tölvupóst á mountainguides@mountainguides.is.
Nýleg verðlaun:
Skrifstofa:
Bankastræti 2
101 Reykjavík
Tölvupóstur:
mountainguides@mountainguides.is
Sími/Fax:
Sími: +354 587 9999
Fax:+354 587 9996