Fjallkonur Íslands 2010 - HRH091

Hápunktar

  • Kvennahópur
  • Kvennaleiðsögn
Verð frá53.000 kr.

FJALLKONUR ÍSLANDS

stöndum saman á Hvannadalshnúki á

Kvenréttindadaginn - 19. júní 2010

Innifalið í verði er vænn fríðindapakki, fyrirtaks leiðsögn vel þjálfaðra leiðsögukvenna og frábær félagsskapur freyja, sem láta sér fátt fyrir brjósti brenna.

Í byrjun árs 2010 bjóða Fjallaleiðsögumenn öllum konum í fjallgöngur þar sem lokatakmarkið er ganga á Hvannadalshnúk, Kvenréttindadaginn 19. júní 2010.

Sambærilegri dagskrá var ýtt úr vör í ársbyrjun 2009 og er óhætt að segja að hún hafi slegið í gegn. Í boði er vegleg dagskrá þar sem konum gefst kostur á að fikra sig hærra og lengra, en þær áður hafa gert, með vandaðri leiðsögn reynslumikilla fjallaleiðsögukvenna.

Göngum saman á lág og há fjöll í góðum félagsskap undir öruggri leiðsögn.

Myndir úr ferðum Fjallkvenna 2010 - Myndir úr ferðum Fjallkvenna 2009

Í heildina er um að ræða 16 göngur auk fræðslukvölda. Fjallaleiðsögumenn sjá um að útvega allan nauðsynlegan öryggis- og jöklabúnað í þær ferðir sem þess er þörf. Heildarverð dagskrárinnar er 65.600 krónur en með tilliti til launamunar kynjanna lækkum við verðið og bjóðum öllum konum að slást í hópinn með okkur fyrir 53.000 kr.

Yfirleiðsögukona dagskrárinnar verður Helga María Heiðarsdóttir og henni til fulltingis verða þaulreyndar fjallagerplur sem margar hverjar standa fjallagörpum þessa lands síst að baki. Flestar tóku þær þátt í fjallkvennadagskránni 2009. 

Fríðindi 2010: 

Fjallkonur sem taka þátt í allri dagskránni fá:

  •  Fræðslukvöld um göngutækni, fatnað, næringu og jöklabúnað.
  •  Sérkjör hjá 66°Norður
  •  Vinkonuferð 6. febrúar. Takið vinkonurnar með!
  •  Netklúbbsverð á öll námskeið Fjallaleiðsögumanna árið 2010
  •  Jöklaganga í Skaftafelli eða á Sólheimajökli – boðsferð fyrir 2 sumarið 2010
  •  20% afsláttur af sól- og skíðagleraugum í gleraugnaversluninni Gleraugnasalan 65, gildir til 19. júní  2010
  •  Mánaðarkort í Sporthúsið
  •  Ferðaávísun að upphæð 5.000 kr. sem gildir í allar lengri ferðir Fjallaleiðsögumanna árið 2010 nema dagsferðir


Af hverju sérstakur hópur fyrir Fjallkonur?

Launamunur kynjanna er ekki aðeins hvimleiður arfur fortíðarinnar heldur ólíðandi staðreynd í nútíma samfélagi. Ítrekaðar rannsóknir á launum kvenna og karla með sömu menntun og reynslu sýna svo að ekki verður um villst að hægt hefur þokast í átt að jafnri stöðu kynjanna þegar kemur að launamálum. Launamunur kynjanna er ennþá á bilinu 10–19% eftir því hvort um er að ræða laun á almennum vinnumarkaði eða hjá ríkinu.

Með þessu vilja Íslenskir Fjallaleiðsögumenn leggja sitt af mörkum til þess að undirstrika réttmæta kröfu um jafna stöðu kvenna og karla.

Sjáumst á fjöllum.

Skilmálar

  Öllum konum er heimil þátttaka í dagskránni Fjallkonur Íslands
  Dætur  undir 16 ára aldri eru á ábyrgð mæðra sinna í öllum ferðum á vegum ÍFLM. 
  Hin almenna regla er að börn yngri en 12 ára fá ekki að fara í ferðir á jöklana tvo; Snæfellsjökul og   Hvannadalshnúk. 
  Eftir ferð á Skálahnúk 10.apríl næstkomandi meta leiðsögukonur ÍFLM hæfni dætra 12-15 ára og skera úr um hvort þær fá að taka þátt í áframhaldandi dagskrá. Skilyrði er að þær dætur sem metnar eru hafi mætt í alla dagskrárliðina. 
  Frítt er fyrir dætur yngri en 12 ára 
  12 – 15 ára dætur greiða eingöngu 26.500 kr

Styrkir til líkamsræktar
Athugið að ýmis stéttarfélög veita félagsmönnum sínum styrki til líkamsræktar sem þessarar. Sjá til dæmis upplýsingar um Varasjóð VR.

Innifalið : Allur nauðsynlegur jökla og öryggisbúnaður Fræðslukvöld um fatnað, næringu og fjallamennsku 
Upphafsstaður : N1 í Ártúnsbrekkunni á austurakrein og við hvetjum konur til þess að sameinast eftir megni í bíla.



Hápunktar

  • Kvennahópur
  • Kvennaleiðsögn
Verð frá53.000 kr.

Hvenær Hvað Hvar Myndir
 14. jan. kl. 20.00 Kynningarfundur: Dagskráin 66°Norður Faxafeni 12
 16. jan. kl. 11.00 Laugardagsganga Heiðmörk - Elliðavatn Myndir
 21. jan. kl. 20.00 Fræðslukvöld: Fatnaður næring 66°Norður Faxafeni 12
 23. jan. kl. 11.00 Fjallganga - dagsferð (u.þ.b. 2 klst) Búrfellsgjá-Búrfell 179 m Myndir
30. jan. kl. 10.00 Fjallganga - dagsferð (u.þ.b. 2-3 klst) Mosfell 276 m Myndir
6. feb. kl.10.00 Fjallganga - dagsferð (u.þ.b. 3 klst) Meðalfell í Kjós 345 m Myndir
13. feb. kl.10.00 Fjallganga - dagsferð (u.þ.b. 3 klst) Keilir 379 m Myndir
 27. feb. kl. 10.00 Fjallganga dagsferð (u.þ.b. 3-4 klst) Geitafell í Þrengslum 509 m Myndir
06. mars kl. 10.00 Fjallganga dagsferð (u.þ.b. 4-6 klst) Hengill - Skeggi 804 m Myndir
 20. mars kl. 10.00 Fjallganga dagsferð (u.þ.b. 3-4 klst) Esja - Dýjadalshnúkur 800 m
 10. apríl kl. 10.00 Fjallganga dagsferð (u.þ.b. 3-4 klst) Geitafell önnur tilraun! Myndir
 17. apríl kl. 08.00 Fjallganga dagsferð (u.þ.b. 6-8 klst) Skarðsheiði - Heiðarhorn 1.053 m Myndir
 22. apríl kl. 09.00 Fjallganga dagsferð (u.þ.b.3-4 klst) Vifilsfell 655 m Myndir
 01. maí kl. 10.00 Fjallganga dagsferð (u.þ.b. 4 klst) Móskarðahnúkar 807 m Myndir
 15. maí kl. 07.00 Dagsferð (u.þ.b. 2-3 klst. á jökli) Sólheimajökull  Myndir
 05. jún kl. 08.00 Fjallganga dagsferð (u.þ.b. 6-8 klst) Syðsta súla 1.093m
 12. jún kl. 07.00 Fjallganga Dagsferð (u.þ.b. 6-8 klst.) Högnhöfði í Biskupstungum
 19. júní kl. 05.00 Fjallganga dagsferð (u.þ.b.12-15 klst) Hvannadalshnúkur 2.110 m




Við leggjum af stað frá N1 í Ártúnsbrekkunni og sameinumst þar í bíla, nema annað sé tekið fram!

Fjöllin framundan:

Esjan heimafjall okkar Reykvíkinga hefur yfir sér tiltekinn hefðarsvip þar sem hún blasir við handan Sundanna. Löngum hefur fólk lagt leið sína á fjallið og er um ótal margar leiðir að velja. Vinsælasta gönguleiðin liggur frá Mógilsá í Kollafirði upp á Þverfellshornið sem er í uþb 720m hæð. Er sú leið flestum fær enda stígur nánast alla leiðina á toppinn, nauðsynlegt er þó að gera ráðstafanir ef snjór eða ís er til staðar og hafa þá viðeigandi búnað. Við ætlum hins vegar að skoða norðurhliðar Esjunnar og skunda á Skálakamb og Dýjadalshnúk.

Hengillinn er í raun ævintýraland fyrir göngufólk og um fjölda spennandi leiða að velja. Hæsti tindur Hengilsins, Skeggi 805m, er á norðvesturendanum og virðist í fyrstu sýn fáum nema fljúgandi fuglum fært upp þangað. En ekki er allt sem sýnist og nokkrar greiðar leiðir eru til á Skeggja. Greiðasta leiðin liggur upp úr Innstadal sunnan Skeggja og er sú leið öllum fær. Útsýni við bestu aðstæður er óviðjafnanlegt. Heildargöngutími: 3 – 5 klst. Gönguhækkun 500m

Keilir er trúlega formfegursta fjallið á Reykjanesskaganum og blasir víða við þar sem hann rís upp af hraunsbreiðum skagans. Keilir rís hæst í 378 m.en af toppinum er geysilega víðsýnt. hins vegar er hæðin ekki allt því talsverður gangur er að fjallinu áður en lagt er á brattann. þó um úfið hraun sé að fara ætti ganga að reynast auðveld enda hægt að fylgja slóða að melunum austan fjallsins. Heildargöngutími 3 - 5 klst. Gönguhækkun ~270m.

Móskarðahnúkar eru staðsettir austan Esjunnarblasa við úr Reykjavík þar sem þeir rísa upp af Stardalnum. Ganga á Móskarðshnúka er ætti ekki að reynast neinum ofraun og er gengið um gróið land og skriður. Jafnan er gengið á austasta hnúkinn sem ber hæst í 807m hæð. Óhætt er að segja að af hátindinum öðlist göngufólk nýja sýn yfir landið. Lagt er upp frá Skarðsá og stefnan nánast tekin beint á tindinn. Heildargöngutími: 3 – 5 klst. Gönguhækkun 675m.

Heklu þekkja trúlega flestir Íslendingar, enda það fjall sem hefur gosið hvað oftast síðan land byggðist. Helka er megineldstöð og ólíkt Snæfellsjökli er hún ekki eldkeila heldur eldhryggur. Oftast er gengið á Heklu úr Skjólkvíum og liggur leiðin um misgömul hraun upp á öxlina og hátindinn þaðan sem afar víðsýnt er við bestu skilyrði og sést í austri til Hvannadalshnúks og norður um allt Fjallabakið. Heildargöngutími 5 - 7 klst. Gönguhækkun ~900m.
Vel er fylgst með Heklu með tilliti til jarðhræringa enda hefur reynslan kennt fólki að Hekla er snör í snúningum þegar gos eru annars vegar. Við munum að sjálfsögðu haga ferðum með hliðsjón af viðbúnaðarstigi Almannavarna.

Botnssúlur gnæfa tignarlegar vestan Þingvalla og hafa lokkað margan göngugarpinn í gegnum tíðina. Nafn sitt draga súlurnar af Hvalfjarðarbotni en þær eru leifar stórrar eldstöðvar sem ísaldarjökullinn svarf til og umbreytti. Vestur Súla er eins og nafnið gefur til kynna vestust fjögurra súlna og næst hæst þeirra þar sem hún rís í 1081 m hæð. Alla jafna er ganga á Vestur Súlu á allra færi og göngulandið fjölbreytt, bæði á grónu landi og blásnum melum. Gangan hefst í Botnsdal í Hvalfirði og fylgt leiðinni um Leggjarbrjót áður en lagt er á brattann og haldið upp vesturhlíðar Súlunnar.  Eftir því sem ofar dregur taka við urð og grjót og leiðin er öll – upp í mót. Trúlega mætti halda því fram að besta færið á Súluna sé einmitt þegar snjóað hefur og þá er urðarglíma ekki til að hafa áhyggjur af en þess í stað nauðsynlegt að hafa brodda og öxi tiltæka. Á góðum degi sér allt til Snæfellsjökuls og jafnvel lengra af hátindinum. Heildargöngutími: 5 – 7 klst. Gönguhækkun: 1050 m.

Snæfellsjökull er eldkeila og trúlega eitt glæsilegasta fjallið í fjallahring höfuðborgarinnar þar sem það rís nánast beint upp af undirlendinu með margvísleg gljúfur, gil og móbergsmyndanir. Lagt er upp skammt frá gömlu námunum á Jökulhálsinum og stefnan tekin upp undir Þríhyrninginn (1446) og Jökulþúfurnar hæstu tinda fjallsins. Heildargöngutími: 5 – 7 klst. Gönguhækkun 1550m.

Hvannadalshnúkur hefur lengi lokkað fjallaáhugafólk og það er ógleymanleg upplifun að ganga á þennan hæsta tind Íslands. Hnúkurinn (2110) sjálfur situr á öskjubarmi Öræfajökuls, einnar af magnaðri eldstöðvum landsins. Ganga á Hvannadalshnúk er krefjandi en öllum fær, gangan er löng og talsverður munur getur verið á veðri á láglendi og í efra. Lagt er upp frá eyðibýlinu Sandfelli og gengið upp á Sandfellsheiðina og henni fylgt að jökli. Haldið er áfram upp hlíðar jökulsins og verður margur feginn þegar öskjubarminum er náð því þaðan er jafnslétta að Hnúknum. Óþarft er að fjölyrða um útsýnið af þessum einstæða stað en það er gríðarlegt við bestu skilyrði. Heildargöngutími: 10 – 15 klst. Gönguhækkun 2000m.

Gallery

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN