Fjallagengið - Kynning

12 mán: 24.900 kr.
  Bókaðu núna í fjallgönguhópinn Fjallagengið!
6 mán: 13.900 kr.
  Bókaðu núna í fjallgönguhópinn Fjallagengið!

Fjallagengið hóf göngu sína haustið 2010 og er sjálfstætt framhald hinnar vinsælu fjallgöngudagskrár Toppaðu með 66°Norður sem hefur skilað nokkur þúsund göngumönnum og -konum á öllum aldri á hæsta tind landsins Hvannadalshnúk (2.110 m).


Eins og þeir einir vita sem reynt hafa er hver fjallganga einstakt ferðalag sem skilur eftir sig fjölmörg minningabrot. Ef til vill lituðu aðstæður á einhvern hátt minningarnar; skin og skúrir, einstakt sólarlag eða stjörnum prýddur næturhiminn. Kannski var það einstök samvinna hópsins, áhugaverðar umræður við samferðamenn eða hvernig þú nýttir reynslu þína og þekkingu til að yfirstíga erfiðar veðuraðstæður. Til langs tíma litið er víst að þáttaka þín í Fjallagenginu mun hjálpa þér við að yfirstíga fjölmargt sem þú hefðir áður litið á sem hindranir og auka færni þína á mörgum sviðum svo ekki sé talað um hið einstaka samband við náttúruna sem verður sífellt traustara eftir því sem ferðunum fjölgar.


Marga hryllir við tilhugsuninni um fjallgöngur í myrkri og kulda vetrarmánuðanna og vissulega er það meiri áskorun en fjallgöngur á hlýjum og björtum sumardegi. Þeir sem ganga reglulega á fjöll allt árið um kring, eins og Fjallagengið, vita að oftast er veðrið (aðstæðurnar) verst fyrir utan svefnherbergisgluggann ... en alls ekki svo slæmt þegar á hólminn er komið.

Ef þú ert til í að bjóða vetrarmyrkri og rysjóttu veðri birginn áttu fullt erindi í Fjallagengið.


Markmið Fjallagengisins

  • Að stunda fjallgöngur og útivist allt árið um kring. 
  •  Að efla andlegt og líkamlegt heilbrigði með ástundun útivistar allt árið um kring
  •  Að safna fjallstindum í fjallahring Reykjavíkur
  •  Að safna fallegum fjallstindum
  •  Að halda árlega eða á tveggja ára fresti í víking, út fyrir landsteinanna, og arka um erlenda grund

Á ég erindi í Fjallagengið?


  •  Já, ef þú hefur tekið þátt í dagskránni "Toppaðu með 66°Norður og Fjallaleiðsögumönnum" eitthvert undanfarinna þriggja ára, líkað hún vel og vilt meira.
  •  Já, ef þú hefur áður gengið á fjöll einn eða með öðrum en þyrstir í meira.
  •  Ef þú hefur verið einn að þvælast en langar hærra og lengra og kippir þér ekki upp við félagsskap skemmtilegra göngufélaga!
  •  Ef þú ert byrjandi í fjallgöngum, við góða heilsu og þokkalega á þig komin líkamlega skaltu ekki hika við að hafa samband, við skrifstofu Fjallaleiðsögumanna, og við ráðum þér heilt.

 

Nokkrar góðar ástæður fyrir þig til að ganga í raðir Fjallagengisins

 

  •  Útivist og fjallgöngur verða að lífsstíl til framtíðar.
  •  Heilsubætandi áhrif reglulegra fjallgangna eru óumdeilanleg.
  •  Stemmningin við að ganga á fjöll í góðra vina hópi.
  •  Fagleg leiðsögn þar sem öryggi þátttakenda er haft í hávegum.
  •  Fámennur hópur og meiri sveigjanleiki í leiðarvali.
  •  Til að sjá nýjar hliðar á veruleikanum.

 


Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN