Fjallagengið - Nánar
12 mán: 24.900 kr.

|
6 mán: 13.900 kr.

|
Yfirleiðsögumaður Fjallagengisins er
Guðmundur Arnar Ástvaldsson sem sér um dagskrá og skipulag hópsins. Hann sér einnig um vikulegar þrekæfingar hópsins en fær með sér valda leiðsögumenn og -konur til aðstoðar þegar á þarf að halda í fjallgöngum hópsins.
Fjöldi þátttakenda á hvern leiðsögumann fer eftir eðli hverrar ferðar en er að lágmarki 8 og að hámarki 16 í laugardagsfjallgöngum Fjallagengisins. Hátt hlutfall leiðsögumanna tryggir öryggi þátttakenda og betri þjónustu.
Dagskrá Fjallagengisins skiptist í þrekæfingar á miðvikudögum og mánaðarlegar fjallgöngur. Þrjá miðvikudaga í mánuði eru þrekæfingar á einu á útivistarsvæðum borgararinnar en einn miðvikudag í mánuði er farið í kvöldgöngu á fjall í nágrenni Reykjavíkur.
Þrekæfingar á miðvikudögum
Að jafnaði eru þrjár þrekæfingar í hverjum mánuði á miðvikudögum kl. 17:30 og taka um 1.5 klst.
Á þrekæfingum er lögð áhersla á að auka almennt þrek og styrk líkamans með fjölbreyttum æfingum.
Þrekæfingar eru haldnar á útivistarsvæðum höfuðborgarsvæðisins og í næsta nágreni þar sem finna má góða stíga og skjól. Sem dæmi um staði má nefna Öskjuhlíð, Elliðaárdal, Heiðmörk og nálægar fells- og fjallshlíðar, en aðeins á meðan hálka eða snjór hamlar ekki för. Markmið æfinganna er þjálfun og því er mikilvægt að undirlag sé gott en hvorki hálka né stórgríti.
Tölvupóstur er sendur út til þátttakenda daginn fyrir hverja æfingu þar sem nánar er kveðið á um staðsetningu og nauðsynlegar upplýsingar svo sem veður og útbúnað.
Myndir úr ferðum Fjallagengisins er hægt að skoða hér
Mánaðarlegar kvöldgöngur
Eitt miðvikudagskvöld í mánuði er haldið í óvissuferð til fjalla í nágrenni höfuðborgarinnar.
Miðað er við að akstur á staðin taki innan við hálftíma og að gangan í heild taki að hámarki 3 klst.
Mánaðarlegar fjallgöngur
Í mánaðarlegum fjallgöngum á laugardögum er beint að fjallaleiðum/tindum á SV-horni landsins, þar sem finna má falleg fjöll og fáfarnar leiðir.
Með vorinu, þegar sól fer að hækka á lofti verður horft lengra eftir verðugum viðfangsefnum, en í dagskrá hópsins er gert ráð fyrir að minnsta kosti tveimur ferðum á hærri fjöll/jökla sem eru lengra í burtu og einni vorferð í fjallasal Öræfa um mánaðarmótin maí/júní.
Samtals ellefu fjöll.
Nánari upplýsingar um hverja göngu eru að jafnaði sendar út í tölvupósti til Fjallagengisins nokkrum dögum fyrir brottför.
Hvað þarf ég? Nauðsynlegur útbúnaður þátttakenda
Það er engin ástæða til að hlaupa út í búð og kaupa nýjasta útivistarfatnaðinn og -útbúnaðinn til að geta tekið þátt í ferðum Fjallagengisins. Þrekæfingar krefjast ekki annars en léttra göngu- eða íþróttaskóa og þægilegs klæðnaðar. Í mánaðarlegum kvöldgöngum þarf að klæða sig eftir veðri en í mánaðarlegum dagsgöngum á laugardögum er mikilvægt að meðfylgjandi lista sé fylgt:
- Fjallgönguskór (mjúkir eða millistífir)
- Hlýr og skjólgóður fatnaður (jakki og buxur)
- Hlýr nærfatnaður (ull eða viðurkennd gerviefni en ekki bómull)
- 25-35 lítra bakpoki
- Hlý peysa
- Húfa og vettlingar
- Utanyfirvettlingar (við vetraraðstæður)
- Góðir vatnsheldir gönguskór (mjúkir eða hálfstífir)
- Legghlífar (eftir aðstæðum)
- GSM-sími
- Ennisljós
Fríðindapakki
Fyrir utan augljósan heilsufarslegan ávinning af reglulegum fjallgöngum standa þátttakendum í gönguhópum Fjallaleiðsögumanna margs konar fríðindi til boða:
- Afsláttur á námskeiðum Fjallaleiðsögumanna 2012
- Jöklaganga í Skaftafelli eða á Sólheimajökli, boðsferð fyrir tvo, sumarið 2012
- Mánaðarkort í Sporthúsinu
- Ferðaávísun sem gildir í allar lengri ferðir Fjallaleiðsögumanna árið 2012
Samskipti við félaga Fjallagengisins
Yfirleiðsögumaður Fjallagengisins sér um vikulegar þrekæfingar hópsins en kallar til aðra leiðsögumenn eftir atvikum þegará þarf að halda.
Fyrir sérhverja ferð, kvöldgöngu eða þrekæfingu er sendur út tölvupóstur á þátttakendur til að minna á og koma helstu upplýsingum til skila.
Akstur og samkeyrsla
Fjallaleiðsögumönnum er annt um náttúru landsins og umhverfi mannfólks. Þess vegna er mælst til þess að göngufólk á okkar vegum sameinist í bíla eins og kostur er, enda sé það umhverfisvænna og kostnaðarminna fyrir þátttakendur.
Meginreglan er sú að farþegar skipta á milli sín eldsneytiskostnaði, en ef farþegi er einn skipta hann og bílstjóri eldsneytiskostnaði á milli sín.
Aksturskostnaður er reiknaður fyrir sérhverja ferð út frá áætlun um fjölda kílómetra, verð á lítra eldsneytis og hvernig akstursleiðin er. Forsendur útreikninga eru sendar út fyrir sérhverja ferð.
Farþegar sjá svo sjálfir að greiða sinn hlut í ferðinni eða semja við bílstjóra um að ganga frá því strax að ferð lokinni.
Öryggis- og umhverfismál á hávegum!
Öryggis- og umhverfismál eru ofarlega í huga Fjallaleiðsögumanna.
Mikilvægt er að þátttakendur séu meðvitaðir um að fjallgöngur, eins og reyndar öll útivist, felur í sér einhverja áhættu, en hana má lágmarka með víðtækri reynslu, staðgóðri þekkingu á aðstæðum og vönduðum undirbúningi.
Öryggi farþega er ávallt efst í huga Fjallaleiðsögumanna. Meðvitaðir um að útivistar verður ekki notið til fulls nema að allir komi heilir heim sjá Fjallaleiðsögumenn um að fyllsta öryggis sé gætt á öllum stigum ferða á vegum fyrirtækisins. Þess vegna er það háð mati leiðsögumanna hverju sinni hvenær beri að snúa við, vegna veðurs, versnandi aðstæðna eða annars.
Það er útbreiddur misskilningur að helsta hlutverk leiðsögumanns sé að koma viðskiptavinum á toppinn eða á einhvern annan ákvörðunarstað. Fyrsta og síðasta hlutverk leiðsögumanna Fjallaleiðsögumanna er að skila þátttakendum heilum á húfi ... af fjalli.
Þótt flest leiðsögufólk Fjallaleiðsögumanna komi úr röðum björgunarsveitafólks þarf allt leiðsögufólk fjallgönguhópa Fjallaleiðsögumanna að sitja öryggisnámskeið sem haldið er tvisvar á ári.
Þess utan halda Fjallaleiðsögumenn reglulega fræðslukvöld fyrir leiðsögumenn fyrirtækisins.
Þannig tryggjum við að leiðsögufólk okkar sé ávallt í fremstu röð.
Í fjallgöngum Fjallagengisins er fjöldi þátttakenda á hvern leiðsögumann háður því hversu erfiðar og alvarlegar fjallgöngurnar eru. Að hámarki eru 16 þátttakendur á hvern leiðsögumann og færri þegar gengið er á jöklum. Hátt hlutfall leiðsögumanna í fjallgöngum tryggir meiri sveigjanleika og betri þjónustu.
Í upphafi fjölmennra fjallgangna er þátttakendum skipt niður á leiðsögumenn, sem skrifa niður nöfn og GSM-símanúmer þátttakenda. Þegar fjölmenni krefst þess að tveir leiðsögumenn fylgi hópnum er jafnan einn sem leiðir hópinn fremstur og annar sem fylgist með þeim sem halda sig aftast. Ef aðstæður og mannafli leyfa er hægt að hraðaskipta hópnum en ef aðstæður krefjast heldur hópurinn saman og ferðast þá sem einn.