12 mán: 24.900 kr.
  Bókaðu núna í fjallgönguhópinn Fjallafólk!

6 mán: 13.900 kr.
  Bókaðu núna í fjallgönguhópinn Fjallafólk!

Fjallgöngur og æfingar

Dagskrá Fjallafólks skiptist í vikulegar kvöldæfingar og mánaðarlegar fjallgöngur.

 

Vikulegar kvöldæfingar


Á vikulegum kvöldæfingum (Þriðjudags þrekæfingum) er lögð áhersla á þol- og styrktarþjálfun. Um tíu sinnum á sérhverju starfsári, gjarnan á vorin og haustin, er haldið á fjöll og fell í nágrenni Reykjavíkur. Vikulegar kvöldæfingar eru á þriðjudögum og hefjast ávallt kl. 18, nema annað sé sérstaklega tekið fram í tölvupósti til félaga. Á hefðbundinni þrekæfingu er byrjað með 15 mínútna strunsi (upphitun) en síðan framkvæmdar fjölbreyttar æfingar með áherslu á almennan líkamsstyrk þar sem nær engöngu er unnið með eigin líkamsþyngd. Kvöldæfingar yfir vetrartímann eru yfirleitt haldnar í Öskjuhlíð en einnig hefur hópurinn æft í Heiðmörk, í Elliðaárdal og í Kópavogi.

 

Mánaðarlegar fjallgöngur


Í mánaðarlegum fjallgöngum (a.m.k. 11 fjöll yfir árið) verður gengið á mörg falleg og krefjandi fjöll í dagsfæri við borgina (sjá hér að ofan undir flipanum „Dagskrá“ ). Sjö af þessum fjöllum eru í þægilegu dagsfæri við borgina (að hámarki 2:00 akstursfjarlægð), fjögur fjöll eru langar dagleiðir og a.m.k. ein í Öræfin þar sem reikna ætti með því að gista tvær nætur. Rétt er að undirstrika að í fjallgöngum Fjallafólks er markmiðið ekki að sigra klukkuna í viðureign við tindinn heldur að koma brosandi heim. Allur sperringur, sem þó er svo mikilvægur á þrekæfingunum ;-) er látin lönd og leið. Í fjallgöngum nýtur Fjallafólk þess hins vegar að vera í góðu formi eftir þriðjudagsþrekæfingar hópsins.

 

Kynning á Fjallafólki


Ljósmyndir úr ferðum með tónlist á Youtube

Öryggi og betri þjónusta


Í öllum fjallgöngum Fjallafólks verða að hámarki 16 þátttakendur á hvern leiðsögumann og færri þegar gengið er á jöklum. Hátt hlutfall leiðsögumanna í fjallgöngum tryggir góða þjónustu. Ef ástæða þykir til verður einnig boðið upp á hraðaskipta hópa.

 

 

Annað – öryggi og tryggingar:


IFLM áskilur sér rétt til þess að breyta út af fyrirhugaðri dagskrá ef öryggi þátttakenda þykir ógnað.
Allar fjallgöngur fela í sér áhættu.
Öryggi viðskiptavina í ferðum Fjallaleiðsögumanna er ávallt í fyrsta sæti og þess vegna leggja Fjallaleiðsögumenn mikla áherslu á hættumat og fyrirbyggjandi ráðstafanir í menntun leiðsögumanna sinna.
Þátttakendur eru á eigin ábyrgð í ferðum Fjallaleiðsögumanna.
Þátttakendum er bent á að leita sér upplýsinga um tryggingar hjá tryggingafélögum.
Hlutverk leiðsögufólks Fjallaleiðsögumanna er ekki að koma fólki á toppinn – heldur að allir komi heilir heim.


Fríðindi Fjallafólks


Afsláttur á námskeiðum Fjallaleiðsögumanna 2012.
Kynningarkvöld hjá 66°Norður á tímabilinu þar sem fjallafólk fær svo afslátt í afmarkaðan tíma.
Mánaðarkort í Sporthúsinu.
Ferðaávísun sem gildir í allar lengri ferðir Fjallaleiðsögumanna árið 2012.

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN