Fjallgönguhópar Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Fjallagengið er sjálfstætt framhald hinnar vinsælu fjallgöngudagskrár Toppaðu með 66°Norður sem á síðastliðnum þremur árum hefur skilað yfir 400 hundruð göngumönnum á öllum aldri á hæsta tind landsins Hvannadalshnúk (2.110 m).
Smelltu hér til að sjá frekari upplýsingar um Fjallagengið
Brattgengið er Fjallamennskuhópur Fjallaleiðsögumanna, hugsaður fyrir þá sem þegar hafa aflað sér reynslu af fjallgöngum og útivist en langar að spreyta sig við flóknari verkefni, klífa glæsilega en stundum torsótta tinda með öruggi að leiðarljósi.
Námskeiðin í dagskrá Brattgengisins
Námskeiðin á dagskrá Brattgengisisins eru Ísklifur, Vetrarfjallamennska, Jöklaferðamennska og Klettaklifur. Staðir sem til greina koma eru Botnssúlur, Skarðsheiði, Sólheimajökull, Skaftafell og Stardalur í Mosfellsbæ.
Smelltu hér til að sjá frekari upplýsingar um Brattgengið.
Fjallgöngur eru lífstíll Fjallafólks - Fjallafólk er hópur fyrir fólk sem vill leggja stund á fjallgöngur og útivist allt árið um kring. Í boði er áhugaverð fjalladagskrá og reglulegar þrekæfingar ásamt öðru.
Smelltu hér til að sjá frekari upplýsingar um Fjallafólk
Skíðagengið er hugsað fyrir vant svigskíðafólk sem langar að víkka sjóndeildarhringinn og komast út fyrir troðnar brautir skíðasvæðanna. Með fjallaskíðunum má sameina tvö áhugamál, fjallgöngur og skíði.
Smelltu hér til að sjá frekari upplýsingar um Skíðagengið